In Camel We Trust
Myndbönd Mánaðarins!
06.05.2007 01:13:10 / voffi

VÁÁÁÁ!!!!

vááá ég nenni þessu ekki ég nenni ekki að vera í þessum helvítis prófum lengur :S FAKKK!!! en marr er búinn 10 maí í þessari vitleysu og þá og þá og ÞÁ VERÐUR SKO TEKIÐ Á ÞVÍ :D Annars er lítið að frétta ég er oftast að chilla á bókhlöðuni eða hjá pabba að læra eða sofa :P svo er marr búinn að vera duglegur að fara út í streetball sem er bara heví nett...

Annars er allt annað bara gott að frétta, þjálfara málin hjá Val að koma á hreint á næstuni og talandi um það þá mátti ég byrja að lyfta í maí og eg sem er ekki buinn að geta lyft í heilt ár er mjög spenntur fyrir þessu en neeeiii marr þarf að bíða eftir þessum þjálfaramálum hjá Val til þess að geta fengið aðstöðu til að lyfta á.. shiii

Nóri er ekkert sérlega duglegur við þessa síðu...spurning um að ég hætti að blogga og joini goldies eða islenskar eða eitthvað í þá áttina ..........naaaaaaaa .........jæja nuna er marr farinn að bulla. ég er allavega farinn að glápa á kassan

LATER!!!!!!!!!!

og já eitt hérna að lokum tjekkiði myspaceið hjá þessum íslendingi er hann að djóka eða

http://www.myspace.com/blackmanisgodthewhitemanisdevil

og eitt hérna að lokum (ég lofa)

Hver er af þessum kisum er ljótastur ?

Tjekkiði augun á honum djöffulsins töffari!!

Camel framan á Play Cat blaðinu

 

Eða ogeðið.....

Er þetta ekki augljóst annars ???


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 19:05:17 / voffi

JON BABY!

Já í dag er hann Jón Eyþór orðinn 18 ára stór strákur! og vildi ég óska honum hérna tilhamingju með afmælið og það verður sko aldeilis tekið á því í kvöld vegna þennan merka dags!!! :D

 

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ BABY!!!!!! 

 

BABY!!

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 21:40:02 / voffi

BOY !

Mjááá mjá mjá.... Nóri er ekki að standa sig i stykkinu enda er gaurinn aðeins of feitur....og á erfitt með að hitta á réttu takkana á lyklaborðinu :S sveekkjandi fyrir feita svínið...

Talandi um feit svín þá var svínið svín á grímuballinu hjá kvenno :P Þetta ball var hellað og er alltaf skemtilegt að dressa sig upp í eitthvað funky...ég var kærleiksbjörninn...ég veit ég veit það sama og í fyrra þetta er bara svo cool búningur og svo er náttla hefð að slást við Nóra í svona þykkum búningum :D 

Sjáið þetta feita sín :S

Jæja en þetta var svona seinasta filleríð í langan tíma núna.... það verður ekkert smá mikið að gera núna bæði í skólanum og körfuni :$  það er meistaraflokksleikur á morgun á selfossi og svo er leikur við Þór Ak á laug hann verður nú bara í kennó kl.5 hvet fólk að mæta þangað og sjá sýningu :P 

Það er gott að chilla i svona búning :D

Annnars er bara allt gott að frétta sko...marr er bara slakur og verður marr bara chillandi næstu helgar.. og já váá ég losna við axlardæmið mitt eftir sirka viku og já það er 1 og hálfur mánuður í það að kallinn meigi byrja að lyfta aftur ;) 

Ætla að láta þetta nægja í bili !

Lag dagsins er : Jay Z - 30 Something ágætis lag þar á ferð 


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 23:38:24 / voffi

12.Mars.2007!

Jeeeessss jesss ! Hvað segiði ? Ekki bara hress ? FLOTT!

Camel bakaði þessa köku :D

Ný vika að byrja hérna og er ég ekki að fýla það ég hata sunudaga,mánudaga,þriðjudaga,miðvikudaga...fimtudagar eru ágætir því það styttist í föst og föstudagar eru mjög góðir sérstaklega seinnipartinn :D svo eru laugardagar náttla snild...en þessir löngu skóladagar eru ekki að gera sig...árshátíðin í skólanum mínum var seinasta fimtudag og núna er allt brjálað að gera í skólanum :S þarf að skila 3 ritgerðum innan við 3-4 vikur og ég er ekki byrjaður...svo eru fullt af prófum að skella á núna.......en ég segi bara alltaf "jæja það styttist í helgina þetta bjargast" þetta segi ég við sjálfan mig mán,þriðj,mið og fimtudag baratil að halda mér gangandi :P..ég er sko ekki að fýla þetta... svo til að bæta uppá þetta þá eru æfingar á fullu og núna eru fullt af meistaraflokksleikjum i vændum.... leikur á morgun á móti FSU á Selfossi mjööggg gaman ég er buinn i skolanum kl.4.15 og þarf að vera mættur uppá ártúnshöfða kl.5.15 NICE ONE!!

Jæja ég er búinn að vorkenna sjálfum mér nóg í þessu bloggi....Nóri feiti kominn frá NY og gaf mér fullt af drasli og MAT :D nei djok audda borðaði hann allt .....

Hérna er mynd af mer og nóra feita rétt áður en hann fór til NY og varð 20 kg þyngri :S

Seinasta helgi var freeekar róleg...ég var bara rólegur á föst að chilla eitthvað..því það var meistaraflokksleikur á laug á móti Hetti sem við tókum frekar easy...svooo á laug fór ég í afmæli til Jón Brynjars félaga míns og fékk mér nokkra bjóra og horfði á Real - Barca, þessi leikur var brjálaður fyrstu mínúturnar :D mjög goður leikur ...eg horfi næstum aldrei á fótbolta lengur :P það eru bara körfuboltaleikir...jáá svo keyrði ég í stjörnuheimilð í eftirparty þar sem að Stjörnumenn tóku bikarinn i handbolta i karlaflokki =] ég var ekki lengi þar og fór til mín og hitti Nóra feita svo skelltu Elín og Snædís sér til mín og við chilluðum smá og ég kikti smá á rúntinn og svo á prikið fór svo bara frekar snemma heim....

En hvað er annars planið næstu helgi ? Hehehe :D ég veit alveg hvað Alex ætlar að gera ;) en hvað með alla aðra ??

En ætla að láta þetta nægja i bili og lag dagsins er án efa!  TuPac and Biggie - Runnin - Living to Die... mæli með þessu ! BÆÆJO 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 22:23:41 / voffi

Fakkin Nóri

Helvítis svínið hann Nóri er í N.Y. ég væri ekkert á móti því að fara þangað í nokkra daga :D

En hann ætlar að kaupa eitthvað fallegt handa mér þarna! Því Camel og Leó eru hjá mér thíthí

Ojjj Chico :S að gera eitthva nasty.......

Jæja ég átti afmæli núna seinasta laugardag og ég hélt ágætis party! það gekk bara mjög vel nema nokkrar uppákomur sem voru leiðinlegar...en það voru allir þarna frekar hellaðir og átti það líka að vera þannig því þemaið var ofurölvun :D

Það sem er framundan hjá mér er árshátíðin hjá FG sem verður á fimtudagin það verður HELLAÐ! það eru svona chilla dagar á morgun og hinn, ég skráði mig í jóga, hárgreiðslu og kaffihús :P ég veit þetta hljómar allt sjúklega gay og erum við 3 strákar í hárgreiðsluni :S en ég er að spara fyrir afengi og allt árshátíðarvesenið matur og leikritið... ég nenni ekki að borga 2000 kall í paintball...En þetta verður HELLAÐ!!!! það er eitt sem er víst! SHJIIIIT!

Svo er náttla heimkoma hans Nóra, ég held að svínið komi heim á fimtudegi svo það verður kanski djammað á föst eða laug...líklega laug því það er meistaraflokksleikur á laug =]

Ég skil ekki afhverju engin hefur boðið mér módel samning...

En hvað ætlar fólk að gera um páskana ?? ég var að pæla í því að fara að heimsækja Halla B til Skotlands! Jón ætlar kanski að koma með mér.... en annars væri ég sjúklega til í að leigja sumarbústað eina helgi...Einhver GAME ????????

Langt siðan við enduðum svona...common þurfum smá áskorun... 8|

En ætla að láta þetta nægja í bili! PEACE

Lag dagsins er - It´s All Real með Pitch Black ...........

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.03.2007 23:34:33 / Nóri

N.Y.

Jæja loksins kemur ferskt blogg á sexy-cats, þessi síða er búin að vera óvirkt í rúmlega hálft ár! en núna erum við hættir á ut´s og ætlum að fara virkja þessa. Ástæðan fyrir því að ég er að blogga er að ég er að passa en fer að sleppa bráðum og ætla þá að kíkja í afmæli til bekkjarsystur minnar sóleyjar, drekka mig piss fullan og rústa pleinu:klikk:

Núna næstu daga verður nóg að gera, brjálað afmæli á mrg þar sem að ég ætla vera ölvaður (er svo helvíti langt síðan að ég var svona ALVÖRU fullur). Þetta verður afmæli ársins! Svo er ég að fara til NEw York á mánudaginn með mömmu og evu sigrúnu unnustu minni, ég á ekki neinn pening þannig að mamma ætlar að redda mér en eva er með fakkin 100.000 til að eyða....FAKKKKK!!! þetta er fermingar peningurinn hennar. Ég var samt að pæla....hvað gerði ég eiginlega við fermingar peninginn minn??? ég fékk rúmlega 150 þúsund og ég veit ekkert hvað varð um hann, eina sem mér dettur í hug er að hann hafi farið í áfengi og eitthvað rugl. HAlli feiti hefur svo fáránlega slæm áhrif á mig:S En tölum ekki um svínið....

http://new-york-hotels.bettervaluehotels.com/images/sanfran1.jpghttp://legeros.com/photos/ny03/images/times-square-one-view.jpg

djöfull verður fáránlega gaman í new york, verðum 3 nætur og er hótelið okkar á time squar. Við verðum að chilla með Entertainment Tonight fólkinu, Barbra Walters og svona8) en þar er E.T. einmitt tekinn upp ásamt TRL. Svo förum við í NBA búðina, matarbúðina, kleinuhringja búðina og eitthvað annað sniðugt! Síðan þegar vð komum til baka á föstudeginum vill Halli að við höldum upp á heimkomuna en ég vil það ekkert:S hann hefur bara svo slæm áhrif þannig að ég mun pottþétt bugast... en ætla ekki að hafa þetta lengra laaater:!:

og já, ég er kominn með myspace eins og allir sem er www.myspace.com/arnor5

kv.nóri

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 13:15:21 / voffi

Byrja aftur með þetta eða ?

Jæææjaaa hvað eigum við að byrja með þessa síðu aftur ?? við erum ekki búnir að vera virkir mjöög lengi samt koma fleiri inná sexy-cats en uts :P og uts er semi virk síða! Hvað finnst ykkur ? byrja aftur með þessa sexy síðu eða ?? :D

 

peace... 


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 12:55:47 / Nóri

Sexy-cats!

Sexy-cats


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 22:53:21 / voffi

Jáááháá!

Jááá ég held að það ættu bara allir að ´fylgja þvi það sem vísindamennirnir segja!!

Water vs Alcohol 
 
It has been scientifically proven that if we drink one 
l litre of water each day, at the end of the year we 
would have absorbed more than one kilo of 
Escherichia Coli Bacteria found in water that 
contains feaces. 
 
In other words, we are consuming one kilo of shit. 
However, we do not run that risk when drinking rum, 
gin, whiskey, beer, wine or other liquors because 
alcohol has to go through a distillation process 
of boiling, filtering and fermentation! 
 
It is my duty to communicate to all of you people 
who are drinking water, to stop doing so. It has 
been scientifically proven that it is unhealthy and 
bad for you. 
 
THEREFORE - It is better to drink alcohol and talk 
shit than to drink water and be full of it !! 

 vs.

Þar hafiði það!


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 22:30:27 / voffi

TAKIÐ EFTIR!!!

HEY HEY HEY!! Jæja það er komin ný svakalega heit síða sem við hérna nokkrir í körfuni erum með, þokkalega heit ;) ALLIR að tjékka á þessu www.blog.central.is/uts ....Sexy-Cats er ALLS ekki hætt..við erum bara búnir að vera dáldi latir uppá síðkastið. *hóst*Nóri*hóst* :S ætla að láta þetta nægja í bili. En tjékk it át

www.blog.central.is/uts

Helgin 15-16 sept 040.jpg

Ég og Nóri :D jeeeii

Vill þakka http://www.blog.central.is/tanorexic fyrir myndina ;) það er líka heit síða =]


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 22:46:23 / voffi

Meira Ruglið!!

Jæjaaaa, við erum alls ekki nógu dugleigir hérna og það sérstaklega hann Nóri :S
Þessi helgi var freekar fucked up og það gerðist margt. Nóri var einn heima og það var chillað þar á föst og laug. Talandi um Nóra þá er þessi ólátabelgur með dólgslæti hvert sem hann fer, drengurinn lennti í átökum við dyraverðina á busaballinu hja kvennó og var með kjaft við þá á meðan þeir héldu honum í gæslu og reyndi meirasegja að flýja þá (þessi gaur) eg og hjalti vorum að chilla hja Nóra að éta pizzu og horfa á kassan og bíða eftir að fólkið kæmi heim til Nóra í smá eftirpartý og þá hringjir heimasíminn og forvitinn einsog ég er þá svara ég bara og þá er þetta einhver kjelling að spurja hvort einhver forráðamaður geti komið og náð í hann en mamma hans var ekkert á staðnum og því vesen og ég spyr hvort ég geti ekki bara komið og náð í hann og að ég væri 18 ára, svo röltum ég og hjalti nirrá Nasa og það munaði engu að við hefðum getað náð í hann en nei þá kemur þessi tjelling inn og segjir að pabbi hans sé á leiðinni :S sveekkkkkkkkkk..... En Nóri er algjör, alltaf í ruglinu og reynir að draga mann niðu með sér...

Hvað er þessi Róni að gera ?? :S díses
Annars er lítið að frétta af mér annað en að skólinn í fullum gír og boltinn alveg á milljón. Einnig er ég orðinn dáldi góður i handleggnum og get núna lyft honum upp en ég er að fá styrkinn í hann aftur sem er bara frábært og líður mér virkilega vel útaf því :D


Eg og Hjalti edrú í fyrirpartýinu :P


Við nokkrir strákar úr boltanum erum að hugleiða að stofna síðu sem ég mun auglýsa hér síðar og verður það mjög skrautleg síða ;) Eg vill ekki gefa upp nafnið strax þar sem að hún er lángt frá því að vera tilbúinn.

En er málið að skella sér á busaballið hjá Versló eða ??? ;)

Allavega ég ætla að láta þetta nægja í bili

Lag Dagsins - Common - Love Is, Frábært lag þar á ferð mæli með því ;)



» 2 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 18:06:33 / Nóri

díses...

jæja loksins gersit eitthvað hérna og eins og vanalega kemur það frá mér:haha: við erum samt búnir að ákveða að vera virkir í vetur, miklu meira að gerast þá!! verðum lika að fara kaupa myndavél en gætum lennt í smá peningavandamál því ég eyði öllum peningunum mínum í hjálparstarf og halli í mat og áfengi8|
annars er slatti búinn að gerast, halli lennti í árekstri og fékk skurð á bakkið, helginni áður vorum ég og halli of fullir sem orsakaði minnisleysi:!: morguninn eftir vaknaði halli með gat á bakinu og ég með bólginn putta, þetta sínir bara hvað við erum góðir með áfengi;)
Þess vegna ákvað ég að vera edrú fram að busaballinu hjá kvennó eða verzló, halli ætlaði að vera með en hann bugaðist á fimmudaginn:P...ég læt ekki undan svona hópþrýstingi8)
Í gær fór ég í sund í 4 tíma og ég er ennþá að jafna mig, sumir vildu náttla prófa alla pottana og gátu ekki verið á sama tíma í 10 mín:$ svo fórum við bara að krúza um og það munaði engu að ég myndi deyja úr leiðindum...en jæja maturinn kallar! later.
nýtt slúður!
Lög dagsins: Swallowed In The Sea - Coldplay og Pussy Got You Hooked - 36 Mafia

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 01:00:06 / voffi

Uppfæra

Jæja ég skellti inn myndunum frá Danmerkur ferðinni sem við strákarnir í mfl karla í körfu hja Val fórum í... það koma inn fleiri grófari myndir ef menn samþykja :] en ætla að láta þetta nægja í bili..það má búast við svaka bloggi frá honum Nóra ;D

Strákarnir sexy í sturtu


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 21:40:25 / voffi

Nýtt

Jæja það er komið nýtt slúður og afsakið það að það sé buið að standa *NÝTT* frekar lengi :P

lag dagsins - De La Sould - Rock Co.Kane Flow  ft. MF Doom. Hellað lag ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 00:02:47 / voffi

HÆTTUR!!

Jæja ég hef ákveðið að leggja bjórinn á hilluna :P og er þetta ekkert grín og ég vill að þið hafið trú á mér :|  En ég ætla ekki að snerta afengi í langan tíma núna! ég drakk seinast á sunudagsmorgni 2.júlí 2006- ég hef semsagt verið edrú í 6 daga núna :) En þúst ég hef ekkert verið að drekka það mikið undafarið. En mig langar allavega að taka mér lánga pásu :)



Allavega ég er byrjaður að telja dagana 6 dagar eru komnir núna.

Lag dagsins - Mos Def. Ms.Fat Booty

kv, Halli ;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Klukkan